HomeFréttirHópur A-landsliðs kvenna fyrir leikina gegn Portúgal klár

Hópur A-landsliðs kvenna fyrir leikina gegn Portúgal klár

Körfuknattleikssamband Íslands hefur tilkynnt 14 manna leikmannahóp A-landsliðs kvenna sem æfir hér heima þessa dagana og heldur til Lissabon í lok vikunnar. Þar leikur liðið tvo vináttuleiki gegn Portúgal, föstudaginn 21. ágúst og laugardaginn 22. ágúst.

Leikirnir eru kærkomið tækifæri fyrir þjálfarana til að skoða fleiri leikmenn og liður í undirbúningi fyrir þriggja leikja undankeppnisglugga fyrir EuroBasket 2029 í nóvember næstkomandi.

Aðalþjálfari liðsins er Pekka Salminen og honum til aðstoðar er Daníel Andri Halldórsson.

Leikmannahópinn skipa Anna Ingunn Svansdóttir, Ásta Júlía Grímsdóttir, Berglind Katla Hlynsdóttir, Danielle Rodriguez, Emma Theodórsdóttir, Eva Wium Elíasdóttir, Heiður Karlsdóttir, Kristrún Ríkey Ólafsdóttir, Rebekka Rut Steingrímsdóttir, Sara Rún Hinriksdóttir, Sigrún Björg Ólafsdóttir, Tinna Guðrún Alexandersdóttir, Thelma Dís Ágústsdóttir og Þóranna Kika Hodge-Carr.

Fréttir
- Auglýsing -