Körfuknattleikssamband Íslands hefur tilkynnt leikmannahóp A-landsliðs karla sem æfir nú hérlendis og heldur til Helsinki í vináttuleik í lok vikunnar áður en haldið verður til Belgrad þar sem liðið mætir Serbíu í undankeppni HM.
Aðalþjálfari liðsins er Craig Pedersen og honum til aðstoðar eru Baldur Þór Ragnarsson og Viðar Örn Hafsteinsson.
Leikmannahópinn skipa Hilmar Smári Henningsson (#5), Jón Axel Guðmundsson (#6), Þórir Guðmundur Þorbjarnarson (#9), Elvar Már Friðriksson (#10), Kári Jónsson (#12), Kristinn Pálsson (#14), Martin Hermannsson (#15), Bragi Guðmundsson (#16), Sigurður Pétursson (#18), Tryggvi Snær Hlinason (#32), Styrmir Snær Þrastarson (#34), Bjarni Guðmann Jónsson (#41) og Sigtryggur Arnar Björnsson (#66).




