16:38
{mosimage}
(Hart barist!)
Hópbílamót Fjölnis er nú í fullum gangi á sex völlum í Rimaskóla og Dalhúsum í Grafarvogi þar sem körfuknattleiksiðkendur á aldrinum 11 ára og yngri leiða saman hesta sína. Jafnan er mikið um skemmtileg tilþrif á þessu árlega móti og leikgleðin allsráðandi hjá þátttakendum í mótinu.
Rúmlega 350 krakkar eru í mótinu en í kvöld verður vegleg kvöldvaka í Íþróttamiðstöðinni Dalhúsum en á áður en hún hefst munu þátttakendur fara blysför frá Rimaskóla.
Hópbílamóti Fjölnis lýkur svo um hádegisbil á morgun með verðlaunaafhendingu og flatbökuveislu.
Karfan.is leit við í Dalhúsum í dag og smellti af nokkrum myndum. Hér að neðan má sjá afraksturinn.
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}



