HomeFréttirHólmarar spreyta sig gegn gömlu herraþjóðinni

Hólmarar spreyta sig gegn gömlu herraþjóðinni

Ingi Þór Steinþórsson er þessa helgina með bæði karla- og kvennalið Snæfells í Danmörku í æfingaferð þar sem liðin leika nokkra leiki. Fjörið hófst á fimmtudagskvöld þar sem liðin léku gegn SISU.
Kvennalið Snæfells tapaði 68-64 í hörkuleik gegn SISU en karlaliðið lagði SISU 86-76. Þá vann karlaliðið Værlöse í gær en með því leikur landsliðsmaðurinn Axel Kárason. Í dag mætast svo Snæfellskonur og Falcon á meðan karlaliðið mætir Næstved.
 
Bæði lið leika s.s. þrjá leiki ytra og eru einnig við æfingar og við fáum vafalítið að heyra í Inga Þór í kvöld eða á morgun þegar törninni er lokið.
 
  
Fréttir
- Auglýsing -