spot_img
HomeFréttirHólmarar bíða enn eftir Amoroso

Hólmarar bíða enn eftir Amoroso

 
Miðherjinn Ryan Amoroso verður ekki með Snæfell á eftir þegar liðið tekur á móti Tindastól í Stykkishólmi kl. 19:15 í Iceland Express deild karla. Amoroso er enn fjarverandi sökum meiðsla og hefur misst af síðustu þremur deildarleikjum Snæfells.
,,Ég var að vonast til þess að hann yrði með á móti Girndavík,” sagði Ingi Þór Steinþórsson þjálfari Snæfells í samtali við Karfan.is í dag en eftir leik kvöldsins eru Grindvíkingar næstir á dagskrá. ,,Ég held samt að hann verði ekki með á móti þeim né ÍR. Það er sem betur fer í þessu sambandi mikið hlé á milli leikja og við þurfum að nota okkur það til að hann nái fyrri styrk,” sagði Ingi en fjarvera leikmannsins hefur haft mikil áhrif á Hólmara sem t.d. lágu gegn botnliði KFÍ í síðustu umferð.
 
Ryan tognaði á kálfa í upphafi árs í leik gegn Fjölni og prufðu Hólmarar að tefla honum fram í nokkrar mínútur gegn Keflavík. ,,Það hefðum við ekki átt að gera. Núna er hann samt á góðum batavegi en þetta þarf sinn tíma til að jafna sig.”
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson: Amoroso hefur verið einn helsti sóknarbroddur Hólmara þetta tíambilið.
 
Fréttir
- Auglýsing -