Karlalið Hamars hefur ráðið til sín bandaríska leikmanninn Jerry L. Hollis JR en hann er tæplega tveggja metra framherji. Hollis JR lék með Johnson C. Smith University og var m.a. valinn í All Conference Team í CIAA deildinn árið 2009 þegar skólinn hans vann vesturdeild CIAA keppninnar.
Á sínu lokaári í skóla var Hollis JR með 15 stig, 7,8 fráköst og 2,5 stoðsendingar að meðaltali í leik en kappinn þykir öflugur á báðum endum vallarins.
www.hamarsport.is greinir frá




