HomeBónus deildinBónus deild karlaHollenskur leikmaður í Laugardalinn

Hollenskur leikmaður í Laugardalinn

Ármann hefur samið við hollenska leikmanninn Oliver Bieshaar um að leika með liðinu á komandi tímabili.

Oliver er 24 ára gamall, um 203 sentímetrar á hæð, og getur leyst stöður framherja og miðherja. Hann kemur til Ármanns með mikla reynslu úr spænskum körfubolta, þar sem hann hefur leikið með liðum á borð við Huesca, Salou og Albacete. Þá á hann að baki reynslu úr unglingastarfi Joventut Badalona og San Pablo Burgos, auk þess að hafa leikið með yngri landsliðum Hollands.

Um er að ræða líkamlega sterkann leikmann sem mun styrkja teiginn hjá Ármenningum á báðum endum vallarins.

Fréttir
- Auglýsing -