14:41
{mosimage}
(Mikið mun mæða á Loga á næstu dögum)
Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik heldur á sunnudag til Mónakó þar sem Smáþjóðaleikarnir fara fram dagana 4.-9. júní næstkomandi. Leiknir verða fimm leikir á fimm dögum og mætir Ísland Andorra í fyrsta leik sínum í mótinu. Að þessu sinni eru sjö leikmenn af Suðurnesjum í liðinu. Sigurður Ingimundarson þjálfari landsliðsins segir liðið vera lágvaxnara en oft áður og teflir nú fram fjórum nýliðum, þeim Jóhanni Árna Ólafssyni, Brynjari Björnssyni, Herði Axel Vilhjálmssyni og Þorleifi Ólafssyni.
,,Við ætlum okkur að hafa rosalega gaman af þessu móti,” sagði Sigurður í samtali við Víkurfréttir en bætti því við að liðið ætlaði engu að síður að halda sínum leikstíl. ,,Við leikum sæmilega hraðan bolta og munum reyna að fá andstæðinginn til að flýta sér í sínum aðgerðum.”
Mun íslenska liðið áfram treysta á góða þriggja stiga nýtingu?
,,Við erum reyndar með góða leikmenn sem eru duglegir að keyra upp að körfunni og það mun mikið mæða á miðherjum okkar en við stólum ekkert endilega á þriggja stiga skotin,” svaraði Sigurður.
Íslenska körfuboltalandsliðið hefur ekki unnið Smáþjóðaleikana í langan tíma en Sigurður segir að þrátt fyrir það fari liðið í mótið með það að markmiði að gera atlögu að titlinum.
Leikir Íslands á Smáþjóðaleikunum í næstu viku:
5. júní kl. 13:30
Ísland-Andorra
6. júní kl. 16:00
Ísland-Lúxemburg
7. júní kl. 18:30
Ísland-Mónakó
8. júní kl. 16:00
Ísland-San Marinó
9. júní kl. 13:00
Ísland-Kýpur
12 manna hópur landsliðsins á Smáþjóðaleikunum
Magnús Þór Gunnarsson
Páll Axel Vilbergsson
Þorleifur Ólafsson
Hörður Vilhjálmsson
Brynjar Björnsson
Jóhann Árni Ólafsson
Friðrik Stefánsson
Brenton Birmingham
Logi Gunnarsson
Helgi Már Magnússon
Kristinn Jónasson
Hreggviður Magnússon
Þjálfari: Sigurður Ingimundarson
Frétt og mynd af www.vf.is – Frá æfingaleik landsliðsins á dögunum er það mætti úrvalsliði Einars Árna Jóhannssonar í Smáranum í Kópavogi. Landsliðið hafði öruggan sigur í leiknum.



