HomeBónus deildinBónus deild kvennaHöfðu betur gegn Ármanni í Garðabæ

Höfðu betur gegn Ármanni í Garðabæ

Stjarnan tryggði sér öruggan 80–62 heimasigur gegn Ármanni í Bónus deild kvenna í kvöld í leik sem fram fór í Garðabæ.  

Heimakonur náðu frumkvæðinu strax í upphafi og leiddu 23–10 eftir fyrsta leikhluta. Ármenningar svöruðu hins vegar af krafti í öðrum leikhluta, sem þeir unnu 24–18, og minnkuðu muninn niður í sjö stig fyrir leikhlé, 41–34. Eftir jafnan þriðja leikhluta skildu leiðir endanlega á lokasprettinum þar sem Stjörnukonur reyndust mun sterkari og unnu fjórða leikhluta 23–11 til að innsigla átján stiga sigur.  

Stjarnan hafði mikla yfirburði undir körfunni og tók 50 fráköst gegn 33 fráköstum Ármanns. Eva Wium Elíasdóttir fór fyrir liði Stjörnunnar með 19 stig og 7 stoðsendingar og Xaviera Alexandria skilaði öflugri tvennu, 15 stigum og 16 fráköstum. Þá átti Stina Josefine góðan leik með 13 stig, 11 fráköst og 6 stoðsendingar. Hjá Ármanni var Diamond Alexis stigahæst á vellinum með 21 stig og 6 stoðsendingar, á meðan Edyta Ewa skoraði 14 stig og tók 8 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -