Ragna Margrét Brynjarsdóttir leikmaður Stjörnunnar var ekki með liðinu gegn Haukum í næst síðustu umferð Dominos deildar kvenna sem fram fór síðasta þriðjudagskvöld. Stjarnan vann leikinn með tveimur stigum og er í fjórða sæti deildarinnar fyrir lokaumferðina sem fer fram í kvöld.
Í samtali við Karfan.is sagði Ragna Margrét að meiðsli hefðu plagað hana síðustu misserin. Ákveðið hefði verið að taka ekki séns í þessum leikjum ef vera skildi að meiðslin væru alvarlegri en talið hafi verið.
„Hnéð er að trufla mig, hef í rauninni ekkert æft síðasta mánuðinn. Fór í segulómun á laugardaginn og er að bíða eftir niðurstöðum. Held að það sé ekkert alvarlegt að en við viljum útiloka að ég sé að skemma eitthvað. Það kemur í ljós vonandi bara á næstu dögum.“ sagði Ragna Margrét.
Stjarnan mætir Grindavík á heimavelli í kvöld kl 19:15 en úrslitakeppnin hefst 28. mars en ljóst er að Stjarnan mun mæta Snæfell í undanúrslitum. Mikilvægt verður fyrir Stjörnuna að fá Rögnu Margréti inn fyrir það einvígi en hún var valin í úrvalslið fyrri umferðar Dominos deilar kvenna og hefur verið frábær á tímabilinu.




