,,Það sem smellur er einna helst að menn byrjuðu að þekkja hvorn annan og spila saman, föttuðu að það er gaman að spila þannig bolta, vorum stirðir í byrjun tímabils. Svo erum við bara einfaldlega með betra lið en þau lið sem við höfum unnið svona til að vera ekki að flækja hlutina. En það skal tekið fram að Nörrköping er ekki inní þessari sigurgöngu,” sagði Hlynur Bæringsson um ástæðu góðs gengis Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni þegar Karfan.is náði tali af kappanum í kvöld.
Sundsvall lagði Uppsala í kvöld og hafa nú unnið 12 deildarleiki í röð og eru á toppi deildarinnar. Við spurðum Hlyn hvort hann fyndi fyrir því og hvort mikið bæri á umfjöllun um þessa 12 sigurleiki?
,,Já töluvert talað um þetta og við finnum alveg fyrir því, þetta er bara mjög skemmtilegt að hafa eitthvað auka til að stefna að. Helst að setja met sem ég held að séu 14 leikir. Þetta gefur rosa sjálfstraust sem er gott ef menn kunna að fara með það og halda auðmýktinni,” sagði Hlynur en hvernig kann hann við sænska keppnisfyrirkomulagið, fjórfalda umferð og hvernig gengur að halda skrokkum í lagi við þetta álag?
,,Ég kann einstaklega vel við það. Þetta er mun skemmtilegra. Þó að mikið sé spilað er líka æft mikið með. Hérna eru engar tveggja vikna pásur eins og koma mjög reglulega heima, sérstaklega ef lið fara ekki langt í bikar. Þær eru vægast sagt hundleiðinlegar. Varðandi álagið reynir maður að hvíla sig vel og hugsa vel um sig, en oft er það nú þannig að það að halda sér heilum er eitthvað sem maður hefur ekki 100% stjórn á sjálfur, þó að einhverju leyti að sjálfsögðu,” sagði Hlynur sem gerði 10 stig og tók 10 fráköst í sigri Sundsvall í kvöld.
Næsti leikur Sundsvall er svo á föstudag þegar liðið mætir Jamtland.




