Alexander Petersson var í gærkvöldi kjörinn íþróttamaður ársins 2010 og varð þannig fyrsti íþróttamaðurinn í sögunni af erlendu bergi brotinn til að hljóta titilinn. Hlynur Elías Bæringsson leikmaður Sundsvall Dragons í sænsku úrvalsdeildinni í körfuknattleik hafnaði í 7. sæti með 65 stig.
Hlynur var eini körfuboltamaðurinn á topp 10 listanum en Helena Sverrisdóttir leikmaður TCU í bandarísku háskóladeildinni hafnaði í 15. sæti með 19 stig í kjörinu. Jón Arnór Stefánsson atvinnumaður hjá C.B. Granada á Spáni fékk ekki stig þetta árið.




