spot_img
HomeFréttirHlutlausir dráttarmenn fundu heimaleik fyrir Þór

Hlutlausir dráttarmenn fundu heimaleik fyrir Þór

Dregið var í 8-liða úrslit í Poweradebikarkeppni karla og kvenna í dag. Ríkjandi bikarmeistarar Grindavíkurkvenna fengu heimaleik gegn toppliði Hauka og þá braust út gríðarlegur fögnuður þegar Þór Þorlákshöfn fékk heimaleik í karlaflokki en andstæðingar þeirra verða Haukar.

Þorlákshafnar Þórsarar hafa fyrir löngu hætt að bera harm sinn í hljóði og jafnvel hótað skemmdum á téðri bikarskál sem notuð hefur verið við drættina undanfarin ár. Þykir Þórsurum heimaleikirnir í bikarkeppninni helst til of fáir hin seinni ár. 

Til þess að gæta ítrasta hlutleysis við bikardráttinn voru kallaðir til Garðar Svansson stjórnarmaður hjá ÍSÍ og Úlfur Hróbjartsson formaður Siglingasambands Íslands. Stóðu þeir sig báðir með miklum sóma og ákveðið var einnig að skálin fræga fengi að lifa áfram. 

Sjálfir leikirnir munu fara fram dagana 9.-11. janúar næstkomandi.

8-liða úrslit kvenna

Valur – Snæfell 

Keflavík – Skallagrímur 

Grindavík – Haukar 

Stjarnan – Hamar 

 

8-liða úrslit karla 

Njarðvík b – Keflavík 

Þór Þorlákshöfn – Haukar 

Skallagrímur – Grindavík 

Haukar b/KR – Njarðvík

Mynd/ [email protected] – Frá vinstri Úlfur Hróbjartsson, Hannes S. Jónsson og Garðar Svansson. 

Fréttir
- Auglýsing -