HomeNeðri deildir1. deild karlaHeldur til Bandaríkjanna

Heldur til Bandaríkjanna

Alexíus Þór Harðarson mun ekki leika með Fjölni á komandi keppnistímabili, en hann hefur samið við The Kiski School í Saltsburg í Pennsylvaníu.

Alexíus mun stunda nám samhliða því að leika með körfuboltaliði skólans vestanhafs á komandi leiktíð. Hjá Fjölni ríkir mikill stolt yfir þessum áfanga og óskar félagið honum velfarnaðar í nýjum áskorunum og áframhaldandi framförum í bandaríska skólaboltanum.

Fréttir
- Auglýsing -