12:07
{mosimage}
(Hjörtur Harðarsson í leik með Þrótti á síðustu leiktíð)
Hjörtur Harðarsson mun leika og þjálfa hjá Keflavík í vetur. Hjörtur mun gegna stöðu aðstoðarþjálfara en hann hefur stjórnað liðinu á Sigurður Ingimundarson hefur verið með íslenska landsliðið. Frá þessu er greint á heimasíðu Keflavíkur.
Hjörtur er einn leikja-og stigahæsti leikmaður Keflavíkur frá upphafi með 3012 stig í 403 leikjum.
Í fyrra hóf Hjörtur tímabilið með Grindavík og skipti síðan yfir í Þrótt Vogum og kláraði tímabilið með þeim í 1. deildinni.
Hjörtur hefur reynslu úr þjálfun í efstu deild karla. Tímabilið 2006-07 stjórnaði hann Haukum í Iceland Express-deildinni ásamt því að hann hefur þjálfað Þór Akureyri í úrvalsdeildinni.
Mynd: [email protected]
{mosimage}
{mosimage}
{mosimage}