Hjalti Þór Vilhjálmsson þjálfari Fjölnis var í viðtali við Sportþáttinn í gærkvöldi strax eftir sigurinn á Hamri í 1. deild karla. Hann sagðist gríðarlega glaður með sigurinn sem kom liðinu langt með að tryggja sér annað sæti deildarinnar. Hjatli sagði sína menn hafa glutrað tækifærinu á að komast upp í fyrra en nú ætti að gera aðra tilraun og allt yrði lagt í verkefnið þegar úrslitakeppnin hefst.
Viðtal Gests Einarssonar frá Hæli við Hjalta má finna í heild sinni hér að neðan. Sportþátturinn er í loftinu öll mánudagskvöld þar sem rætt er um íþróttir og meðal annars körfubolta. Þáttur sem engin íþróttaáhugamaður ætti að missa af.




