HomeFréttirHjalti nýr þjálfari Fjölnismanna

Hjalti nýr þjálfari Fjölnismanna

Hjalti Þór Vilhjálmsson er nýr þjálfari Fjölnismanna en Grafarvogsliðið ákvað nýverið að framlengja ekki samning sinn við Örvar Þór Kristjánsson. Þetta er frumraun Hjalta með lið í úrvalsdeild en hann hefur um árabil verið viðriðinn yngriflokka þjálfun.
Hjalti er leikmaður Fjölnis en frá ráðningunni var greint í tilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Fjölnis í kvöld. Hjalti mun ekki verða spilandi þjálfari hjá Fjölni og því verða þeir leikmanninum færri eftir þessa ráðningu og verður fróðlegt að sjá hvernig Hjalti muni spjara sig við eldskírnina í úrvalsdeild.
 
Mynd/ KKD Fjölnis Hjalti og Steinar formaður KKD Fjölnis handsala ráðningarsamninginn í Dalhúsum.
  
Fréttir
- Auglýsing -