spot_img
HomeFréttirHinrik á eldi í sigri Vestra - 11 mánaða eyðimerkurganga á heimavelli...

Hinrik á eldi í sigri Vestra – 11 mánaða eyðimerkurganga á heimavelli á enda

 

Vestri og FSu mættust í kvöld í 1. deild karla á Jakanum á Ísafirði. Þetta var annar leikur liðanna í deildinni en FSu hafði unnið fyrri viðureign liðanna í október, 78-68, eftir spennandi leik. Þess má geta að öll innkoma leiksins rann til Birkis Snæs Þórissonar, sonar fyrrum fyrirliða liðsins Þóris Guðmundssonar, en hann hefur verið að glíma við erfið veikindi.

 

 

Vestri skipaði nánast fullu liði í leiknum í fyrsta sinn í dágóðan tíma. Nebojsa Knezevic og Hinriks Guðbjartsson voru aftur mættir en þeir hafa verið tíðir gestir hjá sjúkraþjálfara liðsins í vetur auk þess sem fyrirliðinn Nökkvi Harðarson var aftur mættur á parketið eftir að hafa misst af síðustu sex leikjum vegna höfuðmeiðsla sem hann hlaut í október.

 

FSu var enn án Hlyns Hreinssonar en bróðir hans, Haukur Hreinsson, er hins vegar mættur aftur á klakann eftir dvöl í Danmörku og hefur tekið hans stað í byrjunarliðinu.

 

Kjarninn

Gestirnir skoruðu fyrstu stigin en heimamenn voru skrefi framar allan leikinn. Þeir náðu forustunni eftir þriggja mínútna leik og létu hana aldrei af hendi. Stíf vörn þeirra á Motley skilaði þeim góðri forustu en kæruleysi undir lokinn kostaði þá næstum sigurinn. Vestri batt þarna enda á 9 leikja taphrinu á Jakanum en þeir sigruðu síðast á Ísafirði 8. janúar 2016 er þeir lögðu Ármann að velli.

 

Vörnin

Stefnan hjá Vestra var að halda Terrence Motley í kringum 20 stigin sem er ekki beint létt verk miðað við að hann leiðir deildina í stigaskorun með 36,4 stig að meðaltali í leik. Og það leit ekkert sérstaklega vel út fyrir að það myndi ganga eftir í hálfleik en þá var kappinn kominn með 17 stig. Í seinni hálfleik náðu Vestanmenn þó að loka hressilega á hann, þeir voru á honum eins og mý á mykjuskán í hvert sinn sem hann snerti boltann og þröngvuðu hann til að senda eða taka erfið skot. Það endaði með að hann klikkaði úr 5 af 6 skotum sínum áður en hann villaði sig útaf þegar rúmlega 6 mínútur voru eftir af leiknum.

 

Lokakaflinn

Flestir héldu að björninn væri unninn þegar Motley villaði sig útaf í fjórða leikhluta og vissulega leit þetta vel út þegar fjórar og hálf mínúta voru eftir og heimamenn með 16 stiga forustu, 74-59. Ari Gylfason var þó ekkert á þeim buxunum að fara að tapa á sínum gamla heimavelli en hann skoraði 12 af 24 stigum sínum í lokaleikhlutanum. Minnst náðu Selfyssingar muninum niður í 3 stig þegar 6 sekúndur lifðu leiks en það var bara of lítið og of seint og Ísfirðingar fögnuðu langþráðum sigri á heimavelli.

 

Hetjan

Hinrik Guðbjartsson var á eldi fyrstu þrjá leikhlutana en í þeim skoraði hann 30 af 34 stigum sínum í þeim. Hann ísaði svo leikinn af vítalínunni en hann skoraði 4 síðustu stig Vestra þaðan en samtals sett hann niður 10 vítaskot í 10 tilraunum.

 

Tölfræði leiks

 

Umfjöllun / Sturla Stígsson

Fréttir
- Auglýsing -