HomeFréttirHilmar úr leik hjá Hamri: Greindur með brjósklos

Hilmar úr leik hjá Hamri: Greindur með brjósklos

 
Hilmar Guðjónsson mun líklegast ekki spila fleirri leiki á þessu tímabili með Hamri í Iceland Express deild karla. Hilmar er búin að vera meiddur í baki í vetur og einnungis spilað 8.leiki. Hilmar sagði í samtali við Hamarsport.is að hann væri kominn með brjósklos.
,,Ég er kominn með brjósklos, læknarnir vilja ekki skera mig því ég er ennþá svo mikið barn þannig ég er í einhverjum sjúkraþjálfunaraðgerðum og þær geta hugsanlega komið brjóskinu aftur á sinn stað og hugsanlega ekki. Það fer nokkurn veginn eftir því hvort ég eigi eftir að spila meira í vetur eða ekki,” sagði Hilmar sem hefur verið með tæp 3 stig að meðaltali í leik fyrir Hamarsmenn.
 
Þetta eru mjög slæmar fréttir fyrir Hamarsmenn sem létu Andrey Dabney fara fyrir stuttu. Hilmar er búinn að skila fínum mínútum í meistarflokk og verið einn af aðalleikmönnum unglingaflokks. Hamarsmenn eru nú í leit að eftirmanni Dabney, og er nú ljóst að næsti leikur verður erfiður fyrir Hamarsmenn sem leika án Hilmars og Andre Dabney í næstu umferð.
 
Mynd/ [email protected] Hilmar er hér til hægri á myndinni, klár í vörninni gegn Haukum í upphafi þessa mánaðar.
 
Fréttir
- Auglýsing -