spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar Smári leiddi Bremerhaven til sigurs gegn Dusseldorf

Hilmar Smári leiddi Bremerhaven til sigurs gegn Dusseldorf

Hilmar Smári Henningsson og Bremerhaven lögðu Dusseldorf í kvöld í Pro A deildinni í Þýskalandi, 75-86.

Á rúmum 28 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hilmar Smári 16 stigum, 9 fráköstum, 3 stoðsendingum og 3 stolnum boltum, en hann var framlagshæstur í liði Bremerhaven í leiknum.

Bremerhaven eru eftir leikinn í 13. sæti deildarinnar með sex sigra og níu töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -