Haukarnir úr Hafnarfirði léku af fingrum fram þegar þeir sigruðu spræka Blika í úrslitum 10. flokki karla nú rétt áðan. Hilmar Pétursson leikmaður Hauka fór gersamlega á kostum í leiknum og hlóð í tröllatvennu sem að Lele Hardy fyrrum leikmaður Hauka hefði roðnað við að sjá. Hilmar skoraði 29 stig og tók 17 fráköst og kryddaði þessa tvennu svo með 4 stoðsendingum. Hilmar var valin Lykilmaður leiksins og við óskum honum og félögum hans til hamingju með titilinn.



