spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar og Munster máttu þola tap gegn Giessen

Hilmar og Munster máttu þola tap gegn Giessen

Hilmar Pétursson og Munster lutu í lægra haldi gegn Giessen í Pro A deildinni í Þýskalandi í kvöld, 82-72.

Hilmar var í nokkrum villuvandræðum í leiknum og þurfti vegna þeirra að setjast á bekkinn með 5 villur eftir aðeins 12 mínútur spilaðar. Hann skilaði þó á þeim fimm stigum, 2 fráköstum og stolnum bolta.

Eftir leikinn er Munster í 8. sæti deildarinnar með 7 sigra og 6 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -