spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar frábær í mikilvægum sigurleik Munster

Hilmar frábær í mikilvægum sigurleik Munster

Hilmar Pétursson og Munster höfðu sigur í dag gegn Artland í Pro A deildinni í Þýskalandi, 97-94.

Hilmar lék rúmar 30 mínútur í leiknum og skilaði 23 stigum, frákasti og 5 stoðsendingum, en hann var framlagshæstur í liði Munster í leiknum.

Með sigrinum nær Munster að hanga á sæti sínu í úrslitakeppninni, en þeir eru eftir hann í 8. sætinu með 14 sigra og 11 töp það sem af er tímabili.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -