13:32
{mosimage}
(Hildur í leik með KR gegn Haukum)
KR varð í gærkvöldi fyrst allra kvennalið til að tryggja sér farseðilinn inn í undanúrslit Subwaybikarsins með mögnuðum og nokkuð óvæntum útisigri gegn sterku liði Hauka. Lokatölur leiksins voru 65-93 KR í vil þar sem Sigrún Ámundadóttir gerði 21 stig og tók 6 fráköst fyrir KR en Slavica Dimovska var langbest í Haukaliðinu með 37 stig. Næsti leikmaður í Haukaliðinu gerði 6 stig og Kristrún Sigurjónsdóttir var fjarri sínu besta með aðeins 4 stig á rétt rúmum 15 mínútum. Karfan.is náði tali af leikstjórnanda KR, Hildi Sigurðardóttur, sem var að vonum himinlifandi með þennan stórsigur á Haukum.
,,Við höfum ekki sýnt okkar réttu hliðar í fyrri hluta mótsins en um áramótin ákváðum við að byrja bara á núllpunkti og byrja á grunninum, vörninni. Við vissum að við þetta kæmi sóknarleikurinn enda hefur vörnin verið fín hjá okkur í síðustu tveimur leikjum,“ sagði Hildur og ljóst að koma Margrétar Köru í Vesturbæinn hefur einnig haft jákvæð áhrif á hópinn.
,,Hún er hörku varnar- og sóknarmaður og mikil barátta í henni og Kara hjálpar okkur heilmikið,“ sagði Hildur sem ætlar sér alla leið í Höllina. ,,Það væri fínt að fá 1. deildarlið í undanúrslitum en það kemur bara í ljós en við þurfum hvort sem er að vinna alla okkar leiki á leiðinni í Höllina,“ sagði Hildur kát í bragði en hún telur að KR liðið hafi átt mikið inni.
,,Þetta var klárlega móralskur sigur hjá okkur gegn Haukum og við vissum allan tímann að við ættum svo mikið inni. Ég myndi segja að við værum með sterkasta og breiðasta hópinn og þrátt fyrir að hafa t.d. lent í villuvandræðum gegn Haukum voru allir sem komu inn á að leysa sín verkefni mjög vel,“ sagði Hildur sem gerði 11 stig, tók 9 fráköst og gaf 6 stoðsendingar í leiknum.
Framundan hjá KR er hreinn úrslitaleikur gegn Valskonum um sæti í A-hluta Iceland Express deildarinnar en Valur er um þessar mundir í 4. sæti deildarinnar með 14 stig en KR hefur 12 stig í 5. sæti deildarinnar og aðeins 4 stig í pottinum. Ef KR tapar munu þær leika í B-hlutanum en ef KR vinnur leikinn ræðst þetta ekki endanlega millum Vals og KR fyrr en í síðustu umferðinni á venjulegri deildarkeppni.
,,Þetta verður klárlega hörkuleikur og við unnum naumlega síðast með einu stigi og ef það verður aftur uppi á teningnum tek ég það fegins hendi, það dugar og við tökum eins stigs sigur ef hann gefst,“ sagði Hildur og væntanlega margir sem bíða spenntir eftir þessari Reykjavíkurglímu liðanna næstkomandi miðvikudag í DHL-Höllinni.
Mynd: [email protected]
[email protected]






