Hildur Björg Kjartansdóttir verður ekki í Snæfellshópnum næstu þrjá leiki og þá er talin með viðureign Vals og Snæfells í Domino´s deild kvenna í kvöld. Stórt skarð að fylla hjá Hólmurum enda Hildur Björg á meðal fremstu leikmanna deildarinnar.
Hildur Björg verður ekki með Snæfell næstu þrjá leiki af persónulegum ástæðum. Þarna myndast gat upp á 11,3 stig og 9,9 fráköst í sveit Hólmara og verður fróðlegt að sjá hvernig Snæfell muni ganga að fylla í þetta stóra skarð en Hólmarar hafa tölfræðina með sér í kvöld, Valur búnar að tapa þremur heimaleikjum í röð og Snæfell búið að vinna þrjá útileiki í röð og sex stig sem skilja liðin að í deildinni.




