HomeFréttirHið árlega 3 á 3 götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa fór fram...

Hið árlega 3 á 3 götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa fór fram með glæsibrag

Fjórða árið í röð fór hið árlega 3 á 3 götukörfuboltamót í Garðinum hans Gústa fram á Akureyri sem hluti af Akureyrarvöku. Mótið er haldið til minningar um hinn ástsæla körfuknattleiksþjálfara og Þórsara, Ágúst H. Guðmundsson, í kringum afmælisdag hans, 26. ágúst.

Sem fyrr báru allar sérstakar viðurkenningar skírskotun í minningu Gústa: Boston (bestu tilþrifin), Gústinn (háttvísisverðlaun), Peysan (flottasta liðið) og Áttan (besti leikmaðurinn). Verðlaunaafhendingin var í höndum sjálfs Pollans, sendiherra Pollamóts Þórs og Skógarbaðanna.

Sigurvegarar og viðurkenningar í yngri flokkum

  • 13 ára og yngri (drengir): Sófaklessur
  • 15 ára og yngri (stúlkur): The Big 3
  • 15 ára og yngri (drengir): Kúlugúbbar
  • Boston (bestu tilþrifin): Skrímslin
  • Gústinn (háttvísisverðlaun): Svörtu sauðirnir
  • Peysan (flottasta liðið): Dýragarðurinn
  • Áttan (besti leikmaður U13 kk): Kristján Ómarsson (Sófaklessur)
  • Áttan (besti leikmaður U15 kvk): María Jónasdóttir (The Big 3)
  • Áttan (besti leikmaður U15 kk): Þorgeir Gauti Finnsson (Kúlúgúbbar)

Sigurvegarar og viðurkenningar í opnum flokki

  • Sigurvegarar: Grunnatriðin
  • Boston (bestu tilþrifin): IcePhil
  • Gústinn (háttvísisverðlaun): Washed Wizards
  • Peysan (flottasta liðið): Farmer and Sons
  • Áttan (besti leikmaður): Elvar Steinn Traustason (Grunnatriðin)

Mótshaldarar færa öllum keppendum, gestum, sjálfboðaliðum og Akureyrarbæ bestu þakkir fyrir aðkomuna og hlakka til að sjá alla aftur að ári á glæsilegasta útikörfuboltavelli landsins.

Myndasafn

Fréttir
- Auglýsing -