spot_img
HomeFréttirHérna er hægt að kjósa Tinnu Guðrúnu verðmætasta leikmann Evrópumótsins í Rúmeníu

Hérna er hægt að kjósa Tinnu Guðrúnu verðmætasta leikmann Evrópumótsins í Rúmeníu

Undir 20 ára stúlknalið Íslands lýkur leik á Evrópumótinu í Rúmeníu á morgun með leik upp á 5. sæti mótsins.

Að öðrum ólöstuðum hefur Tinna Guðrún Alexandersdóttir verið einn af betri leikmönnum liðsins á mótinu og hefur sem slík verið tilnefnd sem ein af verðmætustu leikmönnum þess. Á hlekknum hér fyrir neðan er hægt að kjósa hana, en í leikjunum sex hefur hún skilað 17 stigum, 4 fráköstum, stoðsendingu og 2 stolnum boltum að meðaltali á 28 mínútum spiluðum í leik.

Hérna er hægt að kjósa Tinnu

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -