Undir 16 ára kvennalið Íslands leikur þessa dagana á Evrópumótinu í Portúgal. Liðinu hefur gengið ágætlega á mótinu, en þær leika nú um sæti 9 til 12.
Að öðrum ólöstuðum hefur Berglind Katla Hlynsdóttir verið einn af betri leikmönnum liðsins á mótinu og hefur sem slík verið tilnefnd sem ein af verðmætustu leikmönnum þess. Á hlekknum hér fyrir neðan er hægt að kjósa hana, en í leikjunum hefur hún skilað 24 stigum, 8 fráköstum, 5 stoðsendingum, 5 stolnum boltum og 2 vörðum skotum að meðaltali á 29 mínútum spiluðum í leik.
Hérna er hægt að kjósa Berglindi



