17:29
{mosimage}
Henning Henningsson verður ekki með mfl. karla hjá Haukum á næsta ári í 1. deild karla. Frá þessu er greint á heimasíðu félagsins. Henning tók við liðinu síðastliðið sumar af Hirti Harðarssyni. Undir stjórn Hennings komust Haukar í úrslitakeppni 1. deilar og féllu út fyrir FSu.
Henning segir á heimasíðu Hauka að ástæða þess að hann þurfi að hætta með liðið sé tímaskortur en hann skipti um vinnu á miðju tímabili og hlutirnir þróuðust öðruvísi. Þjálfari Hauka þarf að leggja mikla vinnu og tíma í liðið og hann einfaldlega eigi ekki aflögufæran tíma.
Mynd: [email protected]