HomeFréttirHelgi Rafn: Áttum að gera betur

Helgi Rafn: Áttum að gera betur

Helgi Rafn Viggósson skilaði sínu fyrir Tindastól í kvöld en það dugði ekki til.  Helgi skoraði 9 stig, hirti 8 fráköst og stal 2 boltum.  Það vantaði þó meira en það fyrir Tindastól sem er núna komið með bakið uppvið vegg og ljúka keppni sigri þeir ekki KR á heimavelli á sunnudaginn.  Það má þó spyrja sig að því hvort lokatölurnar í kvöld hafi nokkuð gefið rétta mynd af gangi leiksins? 
"Við vorum inní þessum leik og áttum að gera betur.  Það er eins og þú segir þetta eru ekki réttu tölurnar sem eru á töflunni og við sýnum það bara fyrir norðan á sunnudaginn".   

 

Hvað var það sem vantaði uppá til þess að stela sigrinum hérna í kvöld? 

"Það vantaði bara smá meiri neista, að menn væru tilbúnir í þennan leik, alveg frá byrjun.  Byrjuðum svolítið illa en komum svo vel inní þetta.  Við áttum að gera miklu betur þegar við vorum komnir í rassgatið á þeim, 3 stig eða 2 stig, ég man ekki hvort það var en við áttum að gera miklu betur".  

 

Er það heimavöllurinn sem mun gera gæfumuninn á sunnudaginn?

" Þú sérð það nú að við erum með flottan stuðning hérna, við eigum helminginn í húsinu hérna.  Við erum glæsilegan stuðning hérna fyrir sunnan.  Við erum með flottan stuðning heima líka og við komum hingað aftur hingað á fimmtudaginn í næstu viku".  

 

umfjöllun: [email protected]

Mynd: [email protected]

Fréttir
- Auglýsing -