Helgi Magnússon var með fjögur stig og fjögur fráköst í gærkvöldi þegar Uppsala mátti þola 73-91 skell á heimavelli gegn toppliði LF Basket. Með sigrinum komst LF á topp deildarinnar og situr þar með 34 stig rétt eins og Sundsvall Dragons en LF hefur betur innbyrðis. Sundsvall á svo tvo leiki til góða á LF.
Helgi lék í tæpa 21 mínútu í gær og var í byrjunarliðinu en þeir John Rosendahl og Tyrone Levett fóru mikinn í liði LF, báðir með 22 stig.
Uppsala er í 5. sæti deildarinnar eftir leikinn í gær með 24 stig.
Á morgun verður Logi Gunnarsson svo í eldlínunni í Svíþjóð þegar Solna Vikings taka á móti Södertalje Kings í Solnahallen.




