spot_img
HomeFréttirHelgi Magnússon: Við hefðum getað gert miklu betur í vörninni

Helgi Magnússon: Við hefðum getað gert miklu betur í vörninni

Helgi Magnússon var svekktur eftir stórt tap gegn Ísrael í Laugardalshöllinni í kvöld. Helgi spilaði 12 mínútur í leiknum og skoraði 7 stig og hirti 3 fráköst á þeim tíma. Það dugði þó skammt gegn sjóðandi heitum skyttum Ísrael. Helgi sagði liði hafa ætlað sér sigur í kvöld en annað kom á daginn.
"Nei, við komum hingað og ætluðum að vinna. Við vitum alveg að þeir eru mjög góðir en svona fór þetta, því miður".   

Skyttur gestana fór gjörsamlega hamförum í leiknum og voru á köflum undir lok fyrri hálfleiks með hátt í 80 % skotnýtingu, var þetta spurning um varnarleik eða var þetta bara þeirra dagur?

"Þeir náttúrulega hittu mjög vel en jú að hluta er hægt að skrifa stóran part af þessu á varnarleikinn finnst mér, við réðum illa við þá einn á einn fannst mér, þeir komust auðveldlega að körfunni og tættu vörnina okkar í sig og fengu alltaf nokkuð opin skot finnst mér.  Ég man ekki til þess að þetta væru erfiðir þristar hjá þeim.  Við getum gert miklu betur en þetta í vörninni, við vorum að klikka á einföldum hlutum, færslum og öðru og þeir voru eins og þú segir bara heitir í dag, það er bara þannig. Við hefðum getað gert miklu betur í vörninni og gert þetta töluvert erfiðara fyrir þá".  

Mynd/ [email protected] – Helgi starir í eitt fyrsta steinsteypta hvelfda þak Norðurlanda á meðan þjóðsöngur Íslands var leikinn. Sáluhjálpina var ekki að finna í frumkvöðlaþaki Íslands að þessu sinni þegar Ísraelar keyrðu yfir okkar menn.

[email protected]

Fréttir
- Auglýsing -