Skyttur gestana fór gjörsamlega hamförum í leiknum og voru á köflum undir lok fyrri hálfleiks með hátt í 80 % skotnýtingu, var þetta spurning um varnarleik eða var þetta bara þeirra dagur?
"Þeir náttúrulega hittu mjög vel en jú að hluta er hægt að skrifa stóran part af þessu á varnarleikinn finnst mér, við réðum illa við þá einn á einn fannst mér, þeir komust auðveldlega að körfunni og tættu vörnina okkar í sig og fengu alltaf nokkuð opin skot finnst mér. Ég man ekki til þess að þetta væru erfiðir þristar hjá þeim. Við getum gert miklu betur en þetta í vörninni, við vorum að klikka á einföldum hlutum, færslum og öðru og þeir voru eins og þú segir bara heitir í dag, það er bara þannig. Við hefðum getað gert miklu betur í vörninni og gert þetta töluvert erfiðara fyrir þá".
Mynd/ [email protected] – Helgi starir í eitt fyrsta steinsteypta hvelfda þak Norðurlanda á meðan þjóðsöngur Íslands var leikinn. Sáluhjálpina var ekki að finna í frumkvöðlaþaki Íslands að þessu sinni þegar Ísraelar keyrðu yfir okkar menn.





