Þjálfarinn og fyrrum leikmaðurinn Helgi Jónas Guðfinnsson gaf í gær út bókina "Little lessons on Basketball conditioning". Í henni er farið í gegnum þolþjálfun fyrir körfubolta. Bókina er hægt að nálgast frítt á netinu, en þó er tekið við frjálsum framlögum fyrir hana. Að sögn segir Helgi, hann og konu sína ætla að láta gott af sér leiða þessi jólin með því að aðstoða 10 fjölskyldur og að fari framlögin því í að hjálpa enn fleirum yfir hátíðirnar.
Allar frekari upplýsingar og bókina sjálfa er hægt að nálgast á hlekknum hér fyrir neðan.




