,,Ég ætlaði bara að klára þetta, það var það eina sem ég hugsaði og svo bara setja vítið ofan í,” sagði Helga Einarsdóttir sátt með bikarsigur KR á Hamri í dag en Helga átti mikilvæga innkomu á lokasprettinum þegar hún skoraði og fékk villu að auki.
Helga kom inn í fjórða leikhluta af bekknum þegar um tvær mínútur voru til leiksloka, þegar minna en mínúta var eftir braust Helga í gegnum teiginn hjá Hamri, skoraði og fékk villu að auki. Vítið setti hún niður af öryggi en þessi þrjú stig reyndust endanlega banabiti Hamars.
,,Svo var þetta fínt með Skagfirðingana í stúkunni, ég kunni að meta þetta,” sagði Helga enda margir úr Skagfirði mættir til að sjá Tindastól mæta KR í karlaleiknum sem hófst strax á eftir kvennaleiknum en Helga er Skagafjarðarmær að upplagi.
,,Það er stutt síðan við urðum bikarmeistarar svo það er í minningunni og hún er sterk, við munum koma brjálaðar í úrslitaleikinn á móti Keflavík en þær eru með mjög sterkt lið og búnar að bæta við sig öðrum erlendum leikmanni en ég hef reyndar ekki séð hana spila,” sagði Helga sem í dag gerði þrjú stig í leiknum fyrir KR, einmitt þessi þrjú sem reyndust svo drjúg í lokin en hún var einnig með 6 fráköst.
KR-ingar sýndu í dag í karla- og kvennaflokki að DHL-Höllin er ekkert lamb að leika sér við. ,,Þetta er ósigrað vígi karlamegin og við þurfum að fara að hafa það þannig kvennamegin. Annars eigum við Hamar í deildinni hér aftur heima á miðvikudag og við fáum þær brjálaðar í heimsókn. Við unnum samt þennan leik og erum komnar í Höllina og Ágúst (innsk.- þjálfari Hamars) sagði í fyrra að við þyrftum að vinna réttu leikina og við gerðum það núna.”





