Landsliðsleikmaðurinn Helena Sverrisdóttir verður áfram leikmaður Good Angels Kosice í Slóvakíu á næstu leiktíð en hún skrifaði nýverið undir eins árs framlengingu við klúbbinn. Helena þreytti sína frumraun í atvinnumennsku fyrst íslenskra kvenna á síðasta tímabili og varð meistari með Good Angels í Slóvakíu en liðið lék einnig í meistaradeild Evrópu.
Good Angels mun leika í meistardeild Evrópu á næstu leiktíð og hafa þegar framlengt við Helenu eins og áður greinir sem og fleiri sterka leikmenn og ætlar klúbburinn sér enn lengra en á nýafstöðnu tímabili þegar Good Angels datt út í 14 liða úrslitum að lokinni riðlakeppni.






