Tvær landsliðskonur hafa spilað alla 19 landsleiki Íslands frá því að íslenska kvennalandsliðið var endurvakið árið 2012. Eftir Smáþjóðaleikana í júní voru þrír leikmenn ekki búnar að missa úr landsleik frá því að kvennalandsliðið var endurvakið fyrir þremur árum.
Þetta voru þær Helena Sverrisdóttir, Pálína Gunnlaugsdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir sem höfðu þá spilað alla þrettán leiki liðsins frá 2012 til 2015.
Tvær aðrar voru líka búnar að alla þrettán leiki liðsins frá 2012 til 2014 eða þær Hildur Sigurðardóttir og María Ben Erlingsdóttir sem voru ekki með á Smáþjóðaleikunu. Hildur Sigurðardóttir hafði lagt körfuboltaskóna á hilluna og María Ben Erlingsdóttir er í barnsburðarleyfi.
Pálína Gunnlaugsdóttir datt úr hópnum þegar hún komst ekki í æfingaferðina til Danmerkur í júlí þar sem liðið spilaði þrjá landsleiki við Danmörku og Finnland.
Eftir standa því Helena Sverrisdóttir og Gunnhildur Gunnarsdóttir sem hafa báðar spilað 19 síðustu leiki liðsins. Gunnhildur var að spila sína fyrstu landleiki sumarið 2012 en Helena hefur ekki misst úr landsleik undanfarin ellefu ár.
Gunnhildur Gunnarsdóttir hefur ekki misst úr landsleik síðan að hún spilaði sinn fyrsta landsleik sem var á móti Noregi á Norðurlandamótinu í Bærum í Noregi 24. maí 2012.
Flestir landsleikir frá 2012 til 2015:
Helena Sverrisdóttir 19
Gunnhildur Gunnarsdóttir 19
Sigrún Sjöfn Ámundadóttir 16
Pálína Gunnlaugsdóttir 16
Bryndís Guðmundsdóttir 15
Hildur Sigurðardóttir 13
María Ben Erlingsdóttir 13
Ragna Margrét Brynjarsdóttir 12
Hildur Björg Kjartansdóttir 12
Margrét Rósa Hálfdanardóttir 12
Petrúnella Skúladóttir 10
Frétt: www.kki.is
Mynd: [email protected]