Good Angels Kosice, lið Helenu Sverrisdóttur, tapaði í dag fyrir UMMC Ekaterinburg, 61-55, í Euroleague kvenna. Liðin eigast við í annari umferð keppninar þar sem fyrra liðið til að vinna tvo leiki fer áfram. Good Angels eiga heimaleik á föstudaginn og geta þá knúið fram oddaleik. Helena lét lítið fyrir sér fara í leiknum en henni tókst aðeins að skora 3 stig á þeim 22 mínútum sem hún spilaði.
UMMC Ekaterinburg, sem er frá Rússlandi, hefur endað í 3. sæti í Euroleague kvenna síðastliðin fjögur ár og það verður því ærið verkefni fyrir Góðu Englana að vinna næstu tvo leiki og fara áfram. Hægt er að fylgjast með framgangi keppninnar hér



