spot_img
HomeFréttirHelena með 18 stig í stórsigri Miskolc

Helena með 18 stig í stórsigri Miskolc

Miskolc tók á móti Lotto Young Cats í Eurocup í kvöld og skellti Miskolc andstæðingum sínum 106-60 þar sem Helena Sverrisdóttir kom með 18 stig af tréverkinu hjá Miskolc.
 
 
Helena lék í 22 mínútur í leiknum og auk þess að gera 18 stig þá tók hún 3 fráköst, gaf 2 stoðsendingar, stal 2 boltum og var með eitt varið skot. Stigahæst í liði Miskolc var Brittainey Raven með 26 stig.
 
Þetta var annar leikur Miskolc í Eurocup og þeirra fyrsti sigur eftir 90-71 tap á útivelli í fyrsta leik gegn Basket Landes.
  
Fréttir
- Auglýsing -