spot_img
HomeFréttirHelena fánaberi Íslands á Smáþjóðaleikunum

Helena fánaberi Íslands á Smáþjóðaleikunum

Í kvöld kl. 18.00 verða Smáþjóðaleikarnir 2013 settir formlega í Lúxemborg. Helena Sverrisdóttir leikmaður Good Angels í Slóvakíu verður fánaberi Íslands þegar allir íslensku keppendurnir ganga inn á leikvanginn þar sem setningarhátiðin fer fram.
 
Hægt verður að horfa á setningarhátíðina í beinni á heimasíðu leikanna www.luxembourg2013.lu
 
Allir leikirnir í körfunni verða beint í lifandi tölfræði og verða leikirnir aðgengilegir á forsíðu KKÍ.is.
 
www.kki.is
  
Fréttir
- Auglýsing -