HomeFréttirHeldur til Suður-Kóreu

Heldur til Suður-Kóreu

Bresk-íslenski körfuboltaþjálfarinn Chris Caird hefur skrifað undir samning við suður-kóreska úrvalsdeildarliðið Wonju DB Promy, þar sem hann mun starfa sem aðstoðarþjálfari.

Chris á að baki flotta reynslu sem þjálfari erlendis en hann færir sig yfir til Suður-Kóreu eftir að hafa starfað sem aðstoðarþjálfari hjá Napoli í ítölsku úrvalsdeildinni (Serie A) á síðasta tímabili. Fyrir dvölina á Ítalíu þjálfaði hann einnig í Japan. Hann lýsir yfir mikilli eftirvæntingu fyrir þessu nýja verkefni í Asíu.

Fréttir
- Auglýsing -