Heldur til Grikklands

Grikkinn Giannis Agravanis er genginn til liðs við Vikos Falcons Ioannina B.C. í heimalandinu fyrir tímabilið 2026–2027.

Agravanis kveður þar með íslenska körfuboltann eftir tveggja ára dvöl í Bónus-deildinni, þar sem hann lék fyrst með Tindastóli árin 2024–2025 og síðan með Stjörnunni í Garðabæ á síðasta tímabili. Eftir góða frammistöðu á Íslandi heldur hann nú aftur heim til Grikklands til að taka þátt í átökunum með sínu nýja félagi.

Fréttir
- Auglýsing -