HomeFréttirHeldur í háskólaboltann í Bandaríkjunum

Heldur í háskólaboltann í Bandaríkjunum

Selfyssingurinn Birkir Hrafn Eyþórsson er lagður af stað í næsta ævintýri á ferlinum en hann mun leika með háskólaliði Austin Peay State University í Clarksville, Tennessee. Birkir var í Bandaríkjunum á síðasta tímabili þar sem hann lék í prep-skóla, auk þess sem hann hefur verið burðarrás í öllum yngri landsliðum Íslands.

Selfoss Karfa vekur athygli á að Birkir hafi lagt mikið á sig til að ná sínum markmiðum og óskar honum góðrar ferðar og góðs gengis á komandi árum.

Fréttir
- Auglýsing -