Íslenska U20 landsliðið leikur í átta liða úrslitum A-deildar Evrópumótsins í dag. Leikurinn fer fram í Grikklandi en mótherjar Íslands eru frá Ísrael.
Ísland fór ansi illa með Svíþjóð í 16 liða úrslitum mótsins sem fram fóru í gær en Ísrael vann nokkuð nauman sigur á Ítalíu.
Ísrael vann C-riðil mótsins nokkðu örugglega en liðið hefur vaxið gríðarlega og hefur Tamir Blatt leikstjórnandi liðsins verið einn af bestu leikmönnum mótsins. Liðið átti í fullu fangi með Ítalíu í dag en hafði sigur að lokum.
Ísland mætti Ísrael á æfingamóti í Laugardal fyrir nærri mánuði síðan. Þá hafði Ísrael betur í spennuleik en bæði lið hafa bætt sinn leik mjög síðan þá. Nánar um þann leik má lesa hér.
Leikurinn fer fram kl 11:30 í dag og verður í beinni útsendingu á Youtube-rás FIBA.
8 liða úrslit með stórveldunum Ísrael, Þýskalandi, Spáni, Frakklandi, Serbíu, Grikkjum og Litháen – allar 24x-242x stærri #korfubolti
— Snorri Örn (@snorriorn) July 19, 2017