HomeBónus deildinBónus deild karlaHeld ég sé ekki búinn að átta mig á þessu, hvernig mér...

Held ég sé ekki búinn að átta mig á þessu, hvernig mér á að líða

Grindavík tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í Bónus deild karla í körfuknattleik í kvöld með sigri gegn Tindastóli í Síkinu á Sauðárkróki.

Leiknum lauk með sjö stiga sigri gestanna, 109-102, eftir æsispennandi lokamínútur þar sem Grindvíkingar stóðust pressuna. Með þessum sigri vinnur Grindavík úrslitaeinvígið samanlagt 3-1 og fagnar titlinum á útivelli eftir harða baráttu við öflugt lið Tindastóls.

Hérna er meira um leikinn

Karfan spjallaði við Kristófer Breka Gylfason leikmann Grindavíkur eftir að titillinn var í höfn.

Fréttir
- Auglýsing -