HomeFréttirHeil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld

Heil umferð í Iceland Express deild kvenna í kvöld

Í kvöld fer fram heil umferð í Iceland Express deild kvenna en þetta er 21. umferð deildarinnar og í dag eru því 16 stig eftir í pottinum. Topplið Keflavíkur fær KR í heimsókn en liðin eru í fyrsta og fjórða sæti deildarinnar og tíu stigum munar á þeim.
Leikir kvöldsins, allir kl. 19:15 nema viðureign Vals og UMFN:
 
18:00: Valur-Njarðvík
Fjölnir-Snæfell
Haukar-Hamar
Keflavík-KR
 
Staðan í deildinni
Nr. Lið U/T Stig
1. Keflavík 16/4 32
2. Njarðvík 15/5 30
3. KR 12/8 24
4. Haukar 11/9 22
5. Snæfell 9/11 18
6. Valur 7/13 14
7. Hamar 5/15 10
8. Fjölnir 5/15 10
  
Fréttir
- Auglýsing -