Í kvöld fer fram heil umferð í Domino´s deild kvenna en þetta er 9. umferð deildarinnar af 28. Allir leikir kvöldsins hefjast kl. 19:15 og verður viðureign Vals og Snæfells í Vodafonehöllinni í beinni útsendingu hjá Sport TV sem og á RÚV Íþróttir.
Leikir kvöldsins í Domino´s deild kvenna, 19:15:
Grindavík – Keflavík
Valur – Snæfell
Hamar – KR
Njarðvík – Haukar
Þá mætast Haukar og Grindavík/Þór Þorlákshöfn kl. 19:45 í 11. flokki drengja og Hekla tekur á móti Íþróttafélagi Breiðholts í 2. deild karla kl. 20:00 á Hellu.
Staðan í Domino´s deild kvenna
|
Nr.
|
Lið | U/T | Stig |
|---|---|---|---|
| 1. | Keflavík | 7/1 | 14 |
| 2. | Snæfell | 6/2 | 12 |
| 3. | Grindavík | 5/3 | 10 |
| 4. | Haukar | 4/4 | 8 |
| 5. | Hamar | 4/4 | 8 |
| 6. | Valur | 3/5 | 6 |
| 7. | Njarðvík | 2/6 | 4 |
| 8. | KR | 1/7 | 2 |
Mynd/ Ragna Margrét Brynjarsdóttir og Valskonur taka á móti Snæfell í kvöld en sex stig skilja liðin að í deildinni.




