Þrettánda umferð Dominos deildar kvenna fer fram í kvöld með fjórum leikjum.
Fjölnir tekur á móti Skallagrím í Dalhúsum, Breiðablik og Snæfell mætast í Smáranum, í Ólafssal í Hafnarfirði eigast við Haukar og KR og í Origo Höllinni taka heimakonur í Val á móti Keflavík.
Leikir dagsins
Dominos deild kvenna:
Fjölnir Skallagrímur – kl. 18:15
Breiðablik Snæfell – kl. 19:15
Haukar KR – kl. 20:15
Valur Keflavík – kl. 20:15



