Það var spenna í loftinu í Vesturbænum þegar KR tók á móti liði Álftaness. Fyrir leikinn munaði aðeins fjórum stigum á liðunum í deildinni og ljóst að bæði lið ætluðu sér sigur til að styrkja stöðu sína fyrir úrslitakeppnina.
Eftir miklar sveiflur og baráttu var það KR sem fagnaði dýrmætum sigri, 87–80.
Karfan spjallaði við Jakob Sigurðarson þjálfara KR eftir leik í Vesturbænum.




