spot_img
HomeFréttirHector Harold verður miðherji Grindavíkur í vetur

Hector Harold verður miðherji Grindavíkur í vetur

Grindavík hefur gengið frá ráðningu erlends leikmanns karlamegin og varð fyrir valinu Hector Harold sem var að útskrifast frá Vermont háskólanum sem er 1. deildar skóli í America East deildinni. www.umfg.is greinir frá.

Á heimasíðu Grindavíkur segir einnig:

Hector er 2,01 að hæð og spilaði þrist og fjarka í skólanum en mun spila stöðu miðherja hjá Grindavík. Hector er sagður mjög fjölhæfur leikmaður með góða boltatækni enda spilaði hann stöðu skotbakvarðar þar til fyrir 5 árum þegar hann tók ansi myndarlegan vaxtarkipp. Hann á að vera frábær varnarmaður og síðast en ekki síst var hann fyrirliði liðs síns. Að sjálfsögðu eru miklar vonir bundar við hann og mun hann koma til liðs við félaga sína í ágúst og mun því hafa fínan tíma til að aðlagast.

Fréttin í heild á umfg.is 

Fréttir
- Auglýsing -